Name: | Sigurður Sigurþórsson |
---|---|
City: | Reykjavík |
Country: | Iceland |
Membership: | Adult Member |
Sport: | Football/Soccer |
See the guidance at the top of this page to understand why you are not seeing interactive Football/Soccer images.
Þrír litir: Skipta hópnum upp í þrjá liti, gulur, rauður og blár.
1) Allir hlaupa frjálst um svæðið, en boltunum er alltaf leikið á milli manna eftir ákveðinni litaröð; gulur gefur á rauðan, rauður á bláan og blár á gulan. 3 boltar í umferð hverju sinni. Áhersla á hlaup án bolta.
2) Tveir litir á móti einum, sá litur sem klúðrar boltanum fer allur í miðju o.s.fr.
See the guidance at the top of this page to understand why you are not seeing interactive Football/Soccer images.
Skipulag:
1. Setja upp 3 raðir (röð 1, 2, & 3) leikmanna c.a. 30 m frá marki, með markmann í markinu.
2. Allir með bolta.
Fyrirmæli:
1. Fyrsti leikmaður í röð 1 rekur boltan að vítateig og skýtur.
2. Eftir að hafa skotið, rikkir hann á móti fyrsta leikmanni í röð 2 til að spila veggspil við hann(1,2). Leikmaður 1 ætti að leggja boltan fyrir leikmann 2 sem tekur skot í fyrstu snertingu.
3. Þegar leikmaður 2 hefur skotið, setur hann upp vörn fyrir fyrast leikmann í röð 3. Leikmaður 3 leikur á leikmann 2 og tekur skot á markið.
4. Leikmennirnir skipta ekki um raðir fyrr en þeir hafa farið 3 - 4 umferðir í sinni röð.
Áherslur þjálfara:
1. Góð skottækni, með beinni rist, innanverðri rist og utanverðri rist.
2. Stöðufótur á að vera örlítið til hliðar og aðeins fyrir aftan boltann.
3. Fylgja spyrnunni vel eftir með fætinum, þannig að tær vísi í þá átt sem boltanum er ætlað að fara.
4. Mikilvægt að hitta á markið.
See the guidance at the top of this page to understand why you are not seeing interactive Football/Soccer images.
Skallabolti, þar sem skipt er upp í þrjú lið. Tvö lið spila þar sem boltanum er kastað og leikið á lofti til skiptis. Aðeins er hægt að skora með því að skalla eða taka boltann á lofti á marið. Þriðja liðið er í hlutverki batta sem hægt er að gefa á og fá fyrirgjafir inní.
See the guidance at the top of this page to understand why you are not seeing interactive Football/Soccer images.
3 liða Brassi.
Upphitun1: (15 mins)
A) Almennar upphitunaræfingar;
1. Skokka. Byrja rólega en auka svo ákefðina eftir því sem líður á upphitunina.
2. Valhoppa. Hafa góða fjöðrun í hreyfingunum og hnén eru höfð fyrir framan líkamann.
3. Hliðarskref. Leikmenn snúa allir í sömu átt, en þegar þeir eru komnir hálfa leið skipta þeir um hlið.
4. Skokka afturábak. Passa að horfa vel yfir báðar axlir og ekki lengri vegalengd en 10 - 15 m.
5. Hoppa öxl í öxl. Vinna tvær og tvær saman, telja taktinn 1, 2, og 3. Skipta um hlið eftir 3 - 4 hopp.
6. Hliðar - twist. Skipta um hlið á miðri leið.
7. Hælar í rass. Halla sér lítilega fram og spara hælum upp í rassinn.
8. Háar hnélyftur. Halla sér lítilega aftur og lyfta hnjánum uppfyrir mjaðmir í hverju skrefi.
9. Hoppa og lyfta hnjám upp að brjósti. Taka 3 - 4 skref á milli þess sem hoppað er upp.
10. Hliðarspörk. Telja taktinn 1, 2 og 3 og sveifla þá fætinum fram fyrir líkamann eins og verið sé að sparka í bolta sem kemur á lofti.
2) Boltaræningjar.
Skipt í þrjá jafna hópa. Tveir hópar byrja með bolta en sá þriðji á að ræna þeim. Ef maður missir boltann fer maður útfyrir leiksvæðið og æfir sig í að halda á lofti. Leikurinn er endurtekin þannig að allir hópar hafi rænt.