Name: | Sigurður Sigurþórsson |
---|---|
City: | Reykjavík |
Country: | Iceland |
Membership: | Adult Member |
Sport: | Football/Soccer |
See the guidance at the top of this page to understand why you are not seeing interactive Football/Soccer images.
Að hlaupa með boltann, í tveggja liða leik.
8 á 8 eða 7 á 7 + 2 á afmörkuðu svæði með fjórum keilumörkum í hornunum. Markmiðið er að færa boltann úr einu horni yfir í gagnstætt horn (með sama lit; gult - gult/rautt - rautt). Ef liðinu tekst það fær það stig, heldur boltanum og reynir að skora aftur með því að færa hann á milli samlita horna.
*Reynið að hlaupa með boltann til að búa til stöðulega yfirburði og færa boltann frá pressusvæði.
*Það er mikilvægt að sóknarliðið dreifi vel úr sér og reyni að skapa bæði breydd og dýpt þannig að meira pláss skapist til að hlaupa með boltann.
*Þið megið reyna að hlaupa með boltann frá einu marki yfir í annað.
Áherslur þjálfara:
1. Verið meðvitaðar um svæðið í kringum ykkur og munið að horfa í kringum ykkur áður en þið fáið boltann.
2. Sýnið samherjum ykkar með merki eða bendingu hvar þið viljið fá boltann.
3. Vandið fyrstu snertingu til að hafa vald á boltanum.
4. Hallið ykkur yfir boltann þegar þið takið við sendingu og stýrið honum inn í svæðið með fyrstu snertingunni. Reynið að nota fyrstu snertinguna sem fyrsta skrefið í hlaupi fram á við með boltann.
5. Það veltur á því hversu stórt svæðið er sem þið hafið hvort þið getið sparkað boltanum lengra fram fyrir ykkur í hlaupinu.
6. Muna að horfa upp til að sjá þá möguleika sem eru.
7. Reynið að halda góðu jafnvægi og nota gabbhreyfingar þegar þið þurfið að komast framhjá andstæðingi.
See the guidance at the top of this page to understand why you are not seeing interactive Football/Soccer images.
Einföld skotæfing, þar sem leikmenn taka við sendingu, leggja boltann fyrir sig í fyrstu snertingu og skjóta í þeirri næstu. Leikmenn skipta um röð eftir stafrófsröð, þ.e. A - B - C - D.
Unnið í ákveðin tíma t.d. 15 mín. eða þar til einhver hefur náð tilskildum fjölda marka t.d. 6.
Enda æfinguna á að spila á tvö mörk í c.a. 20 mín.
See the guidance at the top of this page to understand why you are not seeing interactive Football/Soccer images.
Skallakeppni, þar sem leikmenn úr röð A fá sendingar til skiptis úr röðum B og C og reyna að skora viðstöðulaust með skalla. Leikmaður úr röð A skiptir í þá röð sem sendi á hann og sá sem sendi fer í röð A. Æfingin gengur í ákveðin tíma t.d. 10 mí eða þar til einhver hefur náð tilskildum fjölda marka t.d. 5 mörkum.
See the guidance at the top of this page to understand why you are not seeing interactive Football/Soccer images.
Hápressa ofarlega á vellinum
Við æfum samstillta pressu hátt uppi, þar sem fremstu 5 reyna að vinna boltann í góðri stöðu til að skora.
© Copyright 2022 Sport Session Planner Ltd.
Developed with Partnership Developers, a division of Kyosei Systems.
Animation Controls (PCs, Macs, Laptops):
Play animation
Play step-by-step
Repeat (toggle)
Full Screen
Pause
Stop
Back/Forward: Drag timeline button
Upphitun: (10 mins)
Leikmenn vinna saman 6 í hópi með tvo bolta. Boltunum er leikið samtímis eftir sendingaröð eins og myndin sýnir, en mjög mikilvægt er að halda samræmi í sendingunum svo að æfingin gangi upp.